Forseti vor hefur staðið sig vel

í erlendum viðtölum við misharða fréttamenn um Icesave málið. Hann hefur verið sá sem þjóðin hefur verið að kalla eftir til að gegna leiðtogahlutverki. Enginn annar máttarstólpi pólitíkurinnar hefur talað máli okkar jafn hressilega og hann eftir að hann neitaði Icesave lögunum staðfestingar.

En nú er að draga til tíðinda á Samfylkingarvígstöðvunum. Karl Th. Birgisson, einn af helstu ráðgjöfum forsetans og ein helsta málpípa Samfylkingarinnar, segir nóg komið. Hann, og elítan í Samfylkingunni, sjá að forsetinn er að draga vagninn af krafti og það má alls ekki þola lengur. Það nefnilega lítur illa út fyrir Samfylkingarforystuna að einhver annar en aumir málsvarar hennar ráði för og dragi vagninn sem varla hreyfist úr sporunum þegar þau eru spennt fyrir vagninn.

Það er talað um að ekki megi nota orðið landráðamenn um þá sem stjórna landinu en fjandi er það nálægt að hrökkva út úr mínum munni núna. Þegar menn eins og Hrannar B. Arnarsson og Karl Th. eru farnir að væla undan röggsemi einhvers sem er ekki alveg sammála þeim, þá á að gefa í og hamra enn betur á málinu því þá erum við loksins að ná árangri, það er alveg ljóst af viðbrögðunum að dæma.

Það er kominn tími á að þessir menn fari að vinna fyrir land og þjóð eins og þeir eru kosnir til en ekki hugsa eingöngu um eigin hag og einstefnu í pólitík. Er þessum mönnum ekki orðið ljóst að fólk er reitt og það þarfnast leiðtoga en ekki þessara vælandi pissudúkka sem vilja læðast áfram og hneppa íslenska þjóð í skuldaklafa til næstu árhundruða, einungis til að hreppa lélegt sæti í evrópusambandsklúbbnum. 

Tími til að linni. Farið frá og leyfið þeim sem þora að komast að, þjóðinni til heilla.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband