Þetta er ein afleiðing hækkaðs áfengisverðs

Krakkarnir hafa ekki lengur efni á að kaupa sér bjór og áfengi, og þar af leiðandi fara þeir útí marijúana vegna þess að 1 gramm kostar 3000 kall en vodkaflaskan 6500 kall.

Þetta hefur verið vitað í áratugi og Steingrímur Joð er ekki svo vitlaus að gera sér ekki grein fyrir afleiðingum þess að hækka áfengi svo mikið sem raun ber vitni. Fíkniefnaheimurinn er harður eins og sést best í Mexíkó en þar eru menn að huga að því hvort ekki ætti að leyfa maríjúana og hass, einungis til að minnka spillingu og það stríð sem geisar á milli lögreglu og fíkniefnasala.

Þær aðstæður sem nú eru í Mexíkó, gætu auðveldlega  sprottið upp hér ef menn passa ekki upp á eins auðveldan hlut og að hækka ekki brennivínið svo að það borgi sig að kaupa eiturlyf, því fólk vill komast í sína vímu hvað sem tautar, og ef það hefur ekki efni á brennivíni þá bara fer það í hassið.  


mbl.is Skilja á milli sölu og framleiðslu á marijúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Flestir ættu árið 2011 að vera nógu upplýstir til þess að átta sig á því að kannabis er skaðminna en áfengi þannig að það er kannski ekki svo slæmt ef að unglingar reyki hass ef þeir drekka minn áfengi.

Ég er samt ekki að mæla með því hafa áfengisverðið svona hátt enda eykur það drykkju á landa með aukinni áhættu.

Persónulega vil ég, sérstaklega núna á sparnaðartímum, að lögreglan einbeiti sér að ofbeldismönnum frekar en að vera að reyna að vernda fólk frá sjálfu sér. Forvarnastarfsemi áá frekar að standa í því og við eigum að lýta á fíkniefnaneyslu sem heilbrigðismál en ekki glæpamál.

Geir Jónsson (IP-tala skráð) 19.2.2011 kl. 13:42

2 identicon

Mikið er ég sammála þér Geir.

Margrét Jensdóttir hjá Vímulausri æsku virðist ekki vera vel upplýst.

Quote: "Margir séu haldnir þeirri ranghugmynd að marijúana-reykingar séu ekki ýkja skaðlegar, sem sé alls ekki raunin. Marijúana sé skaðlegt fíkniefni sem m.a. geti stuðlað að geðsjúkdómum, minnistapi og skertri andlegri getu."

Ég er sammála því að lögreglan ætti að vera að sinna merkari störfum.

Ólafur Búi Ólafsson (IP-tala skráð) 19.2.2011 kl. 16:39

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Það á auðvitað að leyfa þetta og flokka sem heilbrigðismál. Gera alla marijuana neytendur að afbrotamönnum er alveg kostulegt á landi sem á að heita upplýst.

Óskar Arnórsson, 19.2.2011 kl. 17:38

4 identicon

"Brynhildur Jensdóttir, ráðgjafi hjá Vímulausri æsku, segir mikið af foreldrum hringja vegna marijúana-reykinga barna sinna. Þessum hringingum hafi fjölgað mjög undanfarið. Hún segir að svo virðist sem unglingar eigi mjög auðvelt með að nálgast marijúana."

Flottur árangur lögga.

Páll Þorsteinsson (IP-tala skráð) 19.2.2011 kl. 19:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 28
  • Frá upphafi: 823

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 28
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband