Þjóðaratkvæði ofan á þjóðaratkvæði

Það hefði verið nær að draga landið upp úr atvinnuleysi og óáran áður en farið var að rugga bátnum með stórfelldum breytingum á kvótakerfinu.

Það sýnir sig að breytingar á því taki tíma og allir verða að vera sáttir við niðurstöðuna, ekki bara þjóðin heldur líka útgerðamenn því þeir sækja fyrir okkur fiskinn. Þjóðaratkvæðagreiðsla, um hvað ætti hún að vera, um hvað ætti að kjósa? hvort kvótinn sé í eigu þjóðarinnar eða ekki? Kvótinn er í eigu þjóðarinnar nú þegar og það þarf ekki Ólínu Þorvarðardóttur til að segja okkur það. Samfylkingin er búin að klúðra þessu máli algjörlega og það besta í stöðunni væri að lýsa því yfir að breytingar á kvótakerfinu yrði frestað þar til þjóðin hefur verið dregið upp úr þeirri aðstöðu sem hún er í núna og skikk hefur verið komið á atvinnuleysi í landinu.

Það síðasta sem við þurfum núna er að fleiri atvinnuleysingjar verði til með óvandaðri vinnu við breytingarnar eins og Samfylkingarinnar er von og vísa, heldur sameinast um að vinna við gerð kjarasamninga og halda sem flestum í vinnu.

Að lokum vil ég segja þetta; Það er EKKI tímabært að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um kvótakerfið, farið og gerið eitthvað gagnlegt fyrir land og þjóð í stað þess að setja hana (þjóðina) í enn eitt karpið um ekki neitt.  


mbl.is Þjóðaratkvæði um kvótann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

semsagt það er ekkert að því að stór hópur launafólks landsins fær ekki að ljúka sínum kjarasamningum vegna þess að fámenn klíka braskara vilja halda áfram að veðsetja/selja sameign þjóðarinnar (einsog þú bendir á) og umhvað ætti að kjósa spyrð þú - ég hélt að sú spurning hafi legið fyrir um langa tíð og einfaldara gæti hún ekki verið...á alþingin að innkalla aflaheimildir almennings og endurúthluta þeim í kjölfarið gegn gjaldi. nei eða já........einfaldara gerist það varla.

arni (IP-tala skráð) 18.4.2011 kl. 11:02

2 Smámynd: Ólafur Örn Jónsson

Helgi það hefur ekki verið sátt um Kvótakerfið í 27 ár og þjóðin hefur ekki náð fram vilja sínum að afnema það. Hér þarf þjóðaratkvæðagreiðslu um annað hvort kvótakerfi eða sóknarmark. Það tekur engan tíma að skipta yfir á sóknarmark og þarf ekki að raska ró þinni. Það eru fordæmi fyrir því að ekkert samráð var haft hvorki við einn né neinn þegar þetta kvótakerfi var sett á og þarf ekki samráð við ofbeldismenn til að afnema það.

Þjóðin á rétt á að ólögum verði eytt

Ólafur Örn Jónsson, 18.4.2011 kl. 11:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband