Miklir snillingar eru þessir alþingismenn.

Þeir koma upp í pontu í röðum, berja sér á brjóst og tala um mikilvægi þess að bjarga heimilunum með einum eða öðrum hætti. Þetta sé algjör forgangsvinna og beri að koma með tillögur strax um hjálparleiðangur. 

Á sama tíma tala menn ( og konur ) á Alþingi um að fara verði í launastrúktúr ríkisstarfsmanna og skera niður laun þeirra.

Það er eins og ríkisstarfsmenn séu með allt sitt á þurru fjárhagslega, og heimili ríkisstarfsmanna séu undanþegin kreppunni.

Á það ber að líta að ríkið er langstærsti launagreiðandi á landinu  og það er ekki það sem þarf akkúrat núna að skerða laun þeirra aðeins til að auka á vandann.

Ég held að Ólöf Nordal, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Pétur H. Blöndal og fleiri ættu að líta fyrst í eigin barm og komast að raun um hver er raunverulega ábyrgur fyrir ástandinu og leiða þá til ábyrgðar áður en farið er að tala um launalækkanir og auknar byrgðar almennings í landinu.

Sennilega eru þessir miklu snillingar á Alþingi Íslendinga öruggir um sjálfa sig og eru nú þegar farnar að heyrast raddir um að laun þeirra séu ekki í samræmi við þá miklu ábyrgð sem ráðherrar og aðrir áhrifamenn í stjórnsýslunni hafa, s.b laun bankastjóra.

Ég legg til að byrjað verði að spara á hinu háa Alþingi og alþingismönnum verði fækkað úr 63 í 23 og ráðherrum úr 12 í 4. Við hinir Íslendingarnir höfum hreinlega ekki efni á að reka Alþingi með 63 mönnum sem ekkert gera þegar vel árar og ekkert annað en tóma vitleysu þegar illa árar.

Byrjum á Alþingi og förum niður skalann þaðan, þegar búið er að ganga frá því máli, ekki fyrr. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband