Varnar og öryggismál

í huga Björns Bjarnasonar er ekki svo einfalt að skilja. Fyrir ekki svo löngu taldi hann það stílbrot að stofna s.k Varnarmálastofnun þar sem ekki væri skilgreindur borgaralegur og hernaðarlegur tilgangur hennar. Nú, í dag, er svo að skilja að ekki sé ágreiningur um að stofna Varnarmálastofnun (sem er ekkert annað en annað nafn á Ratsjárstofnun) heldur sé stílbrotið að stofnunin sé ekki aðlöguð að starfsemi björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð.

Fyrir þá sem ekki vita fer aðgreining borgaralegs og hernaðarlegs tilgangs ratsjánna, sem vakta landið, fram í ratsjánum sjálfum. Ratsjárnar eru tvenns konar í sama tækinu, annars vegar til borgaralegs tilgangs eins og flugumferðarstjórnunar og hins vegar til leitar og hernaðarlegrar flugstjórnunar. Þess vegna þarf ekki að aðlaga Varnarmálastofnun að björgunarmiðstöðinni heldur er allt til alls og er tilbúið ef menn vilja. Það ætti að vera lafhægt að koma merki Flugstoða, sem fer með borgaralega flugumferðarstjórn, í mótöld björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð og mæta þar með þörfum þeirra til eftirlits um lofhelgina. Ég get skilið þörfina fyrir að geta haft eftirlit með björgunarþyrlum og öðrum flugvélum Landhelgisgæslunnar en flugstjórn herflugvéla og leit að óþekktum flugvélum koma Björgunarmiðstöð lítið við.

Þessi svokallaði umsnúningur Björns, ef svo má kalla, er til hins góða að mínu mati og ég vona að málið um Ratsjárstofnun fari að ljúka. Fyrir okkur sem höfum starfað hjá stofnuninni, erum að vonum þreytt á ástandinu og vonumst til að þriggja ára niðurskurði, endurskipulagningu og endurreisn stofnunarinnar fari að ljúka.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 29
  • Frá upphafi: 825

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 29
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband