70% vilja kosningar strax

Það er kannski ekki raunhæft, því hvað á að kjósa? Sömu mennina og sitja á alþingi íslendinga núna? Nei og aftur nei, Það verður einhvern veginn að breyta fyrirkomulaginu á öllu núna, ég hef ekki lausnina en samt verður að breyta þessu. Alþingi er áhrifalaust og til einskis nýtt eins og sýndi sig í gær.

Fundurinn stóri í Háskólabíói var í einu orði sagt frábær. Geir og Ingibjörg  enn í fullkominni afneitun og neita að horfast í augu við það að þeirra traust er fokið út í veður og vind. Svörin sem komu frá þeim voru alveg út í hött og sýndu svo ekki verður um villst að þeirra tími er liðinn.

Hrokinn og lítilsvirðingin fyrir landslýð er með eindæmum í hinum vestræna heimi og fyrirfinnst sjálfsagt ekki nema í löndum eins og Sómalíu,  Nígeríu og öðrum vanþróuðum Afríkuríkjum. Af hverju er þetta fólk svona blint. Þau sjálfsagt vita að þeirra tími er liðinn og halda sem fastast í völdin á meðan hægt er.

Þetta endar með því að þúsundir manna umkringja Alþingishúsið og bera þessa kalla út úr því með valdi. Það væri hið eina raunverulega lýðræði.

 


mbl.is Tæp 70% vilja flýta kosningum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Johnny Bravo

Er ekki réttast að láta Sjálfstæðisflott, Frammara halda landsþing og gefa öðrum flokkum möguleika á því ef þeir vilja.

Svo og nýjum framboðum tíma til að þroskast.

Það þarf líka að boða þetta þannig að það sé hægt að halda prófkjör, ég ætla að taka þátt í þeim öllum, kjósa fólk sem er ekki búið að vera í 12ár og lengur og hefur einhverja menntun, eitthvað fram að færa eða hæfileika í stjórnmál annað en fegurð og fögur orð.

Þannig það þarf ekki að endurskoða þetta fyrr en í byrjun febrúar, þá verður nú kannski annað hljóð í mannskapnum.

Johnny Bravo, 25.11.2008 kl. 09:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024

S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband