Frábær frammistaða Ríkisstjórnar Íslands

Nú á að hefta algjörlega alla gjaldeyriseign landsmanna, sama hver upphæðin er. Allir þeir sem höndum komast yfir gjaldeyri skulu skila þeim til lánastofnana inna tveggja vikna. Þetta þýðir bara það að þeir sem ætla úr landi með sig og sitt verða að fara slippir og snauðir utan og byrja frá grunni.

Af tvennu illu þá held ég að það að fara snauðir, sé betra en að vera eftir. Þessi ríkisstjórn ætlar greinilega að bjarga þeim sem komu öllu í klandur og skilja okkur eftir í súpunni. Mig svo sem grunaði þetta eins og flestum öðrum, en eitt er að gruna og annað að fá grun sinn staðfestan.

Líklega koma þessi lög ekki í veg fyrir að fólk flytji frá landinu í hópum, menn brjóta einfaldlega þessi lög og fara í kringum. Eitthvað verður að gera til að bjarga sér og sínum.


mbl.is Lög um gjaldeyrismál samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín Snæhólm Baldursdóttir

Þetta var ég líka hrædd um og hugsaði einmitt ..hvernig á fólk að komast úr landi með sig og sína með lágmarksgjaldeyri. Hver getur það sem þarf að leigja sér húsnæði og eiga fyrir nauðsynjum þar til þau fá útborgað í öðru landi?? Enn ein leiðin til kúgunar.

Katrín Snæhólm Baldursdóttir, 28.11.2008 kl. 14:20

2 Smámynd: Hólmdís Hjartardóttir

það fer um mig................hverig kemst maður í burtu?

Hólmdís Hjartardóttir, 28.11.2008 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 831

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband