Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Enn og aftur skulu höfundarrétthafar tónlistar

og mynda koma með vafasamar tölur. Vegna okurverðs á hljómdiskum og myndum, hafa æ fleiri notfært sér þá þjónustu að kaupa erlenda tónlist af vefjum svo sem Amazon.com.

Tölur um samdrátt er því í besta falli vafasamar ef ekki beinlínis rangur þegar niðurhali er kennt um.

Auðvitað er niðurhal ákveðið vandamál, en getur líka orðið til þess að sala aukist fremur en dragist saman. Það finnast nefnilega fleiri áhugaverð nöfn flytjenda á torrentsíðum en í plötuverslunum og þá verður forvitnin um flytjandann til þess að örva sölu síðar meir.

Það kemur svo heldur ekki fram að kannski hafi minnkandi auraráð áhrif á söluna, það er nefnilega mjög dýrt að kaupa sér tónlist í dag eins og gengismálum er háttað.


mbl.is Niðurhal af netinu hefur áhrif
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tippikal

Eru höfundarrétthafar ekki komnir út í eitthvað bull???????
mbl.is Var bannað að syngja í vinnunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er náttúrulega það besta sem gæti komið fyrir.

Ef það er krafa um að íslenska ríkið borgi fyrir viðskipti tveggja einkaaðila, þá vil ég að viðskipti þeirra sem selja fisk til bretlands verði ábyrg af breska ríkinu. Það hlýtur að vera sanngjarnt.

Ég er hins vegar ekkert hræddur við dómsmál eins og Guðbjartur er, það hlýtur að gilda að fyrstur kemur fyrstur fær þangað til innistæðusjóðurinn er tómur og þar með er það búið. Ríkið hefur ekki enn samþykkt "gagntilboð" breta og hollendinga og er þar með, með frítt spil. Látum þá sækja aurana sína í gegnum dómskerfið því það er það sem við ættum að vilja.


mbl.is Segja stöðu Íslands styrkjast 23. október
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Apríl 2024

S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Af mbl.is

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband