en það þarf meira til að koma þessum 40.000 heimilum til aðstoðar. Ég myndi segja að þeir sem eru illa staddir þyrftu einfaldlega að fara í greiðslumat og greiða í samræmi við getu hvers og eins, annað verði afskrifað.
Það þarf líka atvinnu og það vel launaða atvinnu. Ég bý á Suðurnesjum þar sem mesta atvinnuleysi er á landinu og einhverra hluta vegna má alls ekki koma neinu af stað hérna, sennilega vegna prinsippa sem Ögmundur og CO hafa og vilja ekki víkja frá sama hvað.
Ummæli Ögmundar varðandi álverið í Helguvík og ECA verkefnið er dæmi um það hvað mikil skammsýni ræður ríkjum í kollum VG manna. Hann (Ögmundur) lætur hafa það eftir sér í Víkurfréttum "að skoða aðra kosti í atvinnumálum en álver í Helguvík og ECA flugverkefnið" Einnig segir hann " flugmálayfirvöld skoða ECA verkefnið og segir að flugmálastjórn hafi miklar efasemdir um verkefnið og það kunni að skaða atvinnuhagsmuni." Þetta er undarlegt, að 200 störf skaði atvinnuhagsmuni, er maðurinn ekki heill á geði? Hvernig getur atvinna skaðað atvinnu þegar 17% atvinnuleysi blasir við? Vissulega eru þröskuldar á þessu ECA verkefni eins og tryggingamál en þau eru hægt að leysa ef vilji er fyrir hendi.
Ögmundur vill nýta kraftinn í Suðurnesjamönnum til annarra verkefna en álver, ECA, virkjanaframkvæmdir, línulagningu og uppbyggingu sjúkrahúss á Vallarheiði svo ekki sé talað um Varnarmálastofnun sem hann og hans félagar eru búnir að leggja niður. Það mætti segja mér að krafturinn í Suðurnesjamönnum sé farinn að minnka við eilífar nauðungarsölur og niðurrif stjórnvalda á atvinnu á svæðinu. Það virðist ekkert nógu gott í hans augum til að vert sé að koma einhverju af því á koppinn, bara vegna prinsippa.
Niðurfærsla rædd í vikunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 1024
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2016
- Október 2012
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Athugasemdir
Ríkisstjórnin segir að fjármálastofnanir hafi ekki efni á leiðréttingu uppá ca. 200 miljarða. En segir ekkert um hvað verðtryggðar skuldir hafi hækkað um marga miljarða frá ársbyrjun 2008, ætli það sé ekki meira en 200 miljarðar?
Biggi (IP-tala skráð) 10.10.2010 kl. 16:15
Íslenskir stjórnmálamenn eru því miður upp til hópa hallærislegir, fávísir og gjörspilltir lýðsskrumarar sem vita ekkert i sinn haus.
Hvernig er hægt að ætlast til þess að Jóhanna, Steingrímur og Árni Páll geri eitthvað af viti? Tveir aflóga pólitíkusar sem hafa ekki menntun , þekkinguné reynslu til þess að sinna sínum störfum. Síðan er það Efnahags- og Viðskiptaráðherrann Árni Páll. Gylfi var nú slæmur þrátt fyrir sína menntun en að skipta honum út fyrir einhvern illa gefinn lögfræðings spjátrung var að fara úr öskunni í eldinn.
Sama máli gegnir um hina ráðherrana. Þetta er alveg ótrúlega illa menntað, illa upplýst og þröngsýnt pakk sem hefur þann eina metnað að hanga á völdum eins og hundur á roði. Þetta spillta og vanhæfa pakk mun aldrei geta gert neitt af viti. Það er öllu hugsandi fólki löngu ljóst.
Guðmundur Pétursson, 11.10.2010 kl. 10:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.