Það kom sem reiðarslag fyrir stuttu þegar Sjávarútvegsráðherra tilkynnti um verulega skerðingu á þorskkvóta fyrir árið 2007-2008. Hrun í fiskvinnslu blasir við og ekkert virðist til ráða til að stemma stigu við sívaxandi fólksflótta frá landsbyggðinni til suðvesturhornsins.
Þar sem ég ber ennþá taugar til vestfjarða og fólksins þar, þá langar mig að koma fram með tillögu um nokkra hluti sem í fljótu bragði virðast róttækar en gætu þó orðið til góðs ef ráðamenn þjóðar vorrar taka við sér. Á Glámuhálendinu er gnægð lítilla vatna sem Orkubú Vestfjarða gerði á sínum tíma áætlanir um að virkja með svokallaðri þakrennu aðferð. Þetta er umhverfsvæn aðferð og hefur ekki í för með sér mikla spillingu umhverfis eins og t.d Kárahnjúkavirkjun og virkjanirnar í Þjórsá. Þessi virkjun á Glámu gæti gefið 75-85 MW sem gæti dugað vestfirðingum fyrir öllu því rafmagni sem notað er á Vestfjörðum öllum, um ókomna framtíð. Með þessu yrði líka til stöðugleiki í afhendingu rafrmagns til notenda, og gæti þar með orðið til þess að hægt væri að bjóða erlendum aðilum ódýra og vistvæna orku til sölu, t.d með hýsingu netþjónabúgarða og vistun gagnageymsla. Enginn staður á Íslandi væri betur til þess fallinn þar sem loftslag er frekar kallt og auðvelt að kæla slíka starfsemi niður með minni tilkostnaði. Með þess konar atvinnustarfsemi gæti skapast 50- 70 varanleg störf fyrir tæknimenntað fólk sem og aðra ásamt afleiddum störfum sem gætu orðið 10-20 til viðbótar. Þess konar starfsemi fylgir engin mengun og náttúran fengi að njóta sín án sjónmengunar sem t.d olíuhreinsunarstöð óneitanlega myndi valda svo ekki sé talað um loftmengun sem af slíkri stöð yrði.
Með tilkomu slíkrar virkjunar yrði strax við ákvarðanatökuna sjálfa til þensla sem yrði til .ess að húseignir hækkuðu, fólk sem væri í startholunum að flytja myndi staldra við og ef til vill bíða þar til framkvæmdum lyki og atvinnuástand myndi batna í öðrum greinum þar sem bjartsýni myndi aukast og framkvæmdir fara af stað. Auk alls þessa myndi skapast ráðrúm fyrir aðra staði landsins til framkvæmda þar sem raforka væri þá til á landsnetinu sem ekki væri notuð á vestfjörðum.
Þetta eru svo sem bara hugleiðingar, en orð eru til alls fyrst og ég vona að eitthvað gerist í atvinnumálum vestfirðinga fljótlega.
Flokkur: Bloggar | 18.7.2007 | 15:26 (breytt kl. 15:26) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 1024
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2016
- Október 2012
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Athugasemdir
Takk fyrir þetta innlegg. Mun gera mitt til að koma því áfram
Katrín, 18.7.2007 kl. 15:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.