Færsluflokkur: Bloggar

Þetta er réttlætismál að fá að vita

hvað bankarnir hafa verið að gera. Krosseignatengsl Bakkabræðra og Jóns Ásgeirs hafa orðið til þess að almenningur þarf að borga fyrir sukkið og þá á að leyfa þeim sem borga að fá að vita hvernig málin stóðu og koma þeim sem ábyrgir voru á viðeigandi stofnun.

Ég var að lesa bókina "Menn sem hata konur". Þar er sögupersóna sem kann ýmislegt fyrir sér í tölvuhakki og komst inn á þær tölvur sem hún vildi. Er ekki hægt að fá slíka manneskju til að fara inn á tölvur þessara manna til að komast að því hvar þeir geyma milljarðana. Finna öll lykilorð og millifæra inná reikning ríkisins.

Flestir þessara manna búa í Bretlandi þar sem þeir eiga lögheimili og hafa fengið breskt vegabréf. Ef þessir menn halda að þeir séu öryggir í fjöldanum í London, þá er það mikill misskilningur. Það er nefnilega hægt að komast að þeim hvar sem þeir eru og láta þá gjalda græðginnar.

Það þarf að koma lögum yfir þessa menn í hvaða formi sem er, og bankaleynd á alls ekki við þar sem við borgum brúsann og hljótum að eiga rétt á að vita hvað þessir menn voru að gera.  


mbl.is Lögbanni mögulega hnekkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég fór á fund Samfylkingar í Grindavík

fyrir viku síðan þar sem þrír þingmenn Samfylkingar sátu fyrir svörum. Icesave samningarnir voru þar meðal annars til umræðu. Björgvin G. Sigurðsson lýsti aðdraganda samningsins og fullyrti að Bretar og Hollendingar hefðu ekki reynt að fá Íslendinga til að gera vondan samning, þar sem peningarnir skiptu þá minnstu máli.

Samningurinn var nauðsynlegur til að ekki skapaðist fordæmi fyrir aðrar þjóðir ef sams konar kerfishrun ætti sér stað í öðrum löndum. Ég gat ekki varist þeirri hugsun á meðan hann talaði fyrir samningnum og umsókn í ES, að það mætti semja um Icesave upp á nýtt með niðurfellingu skuldarinnar þegar að samningaborðinu kæmi.

Kannski er þetta bara óskhyggja, en samt gat ég ekki varist þessari hugsun þegar hann útskýrði þessi tvö mál. Kannski hef ég rangt fyrir mér og við þá í djúpum sk... Vonandi verður þessi hræðilegi samningur felldur í þinginu eða forseti vor neitar að skrifa undir lögin sem samþykkt verða. 


Fjárlagahallinn er nú u.þ.þ 160 milljarðar.

Hvernig væri að lífeyrissjóðirnir lánuðu ríkinu fyrir þessu til 50 ára með 1% föstum vöxtum. Af hverjum launamanni er tekin ákveðin upphæð mánaðarlega og hún lögð í lífeyrissjóð, bæði sameiginlegan sjóð og einnig séreignasjóð.

Séreignasjóðirnir hafa tapað miklu í hruninu, en samt ekkert miðað við það hvað almennu sjóðirnir hafa tapað.  Ef ríkinu væri lánað þessi upphæð sem er u.þ.b eins árs innlegg launamanna í lífeyrissjóði, þá gæti Seðlabankinn lækkað vexti hratt, fyrirtækin yrðu lífvænlegri, fólk missti ekki vinnuna og síðast en ekki síst þá væri upphæðin tryggð +1% vextir sem er 40% betra en sjóðirnir ávöxtuðu í góðærinu.

Ef til vill væri líka hægt að hugsa sér að launþegar gæfu sínar lífeyrisgreiðslur í eitt ár til að rétta við hallann og komast þar með fljótt upp úr kreppunni og líta ekki um öxl. Þar með fengi ríkið ( sem eru jú við sjálf ) lánshæfismat sem tíðkast almennt í heiminum en ekki eitthvert ruslmat eins og núna.

Þetta er spurning hvort ekki er hægt að framkvæma fljótt og vel. 


Það væri kominn tími til

að kommarnir fari frá völdum og taki Samfylkinguna með sér. 

Það er líklega eina von okkar að eitthvað verði gert í málefnum heimilanna að koma Sjálfstæðisflokknum og Framsókn saman í stjórn. Láta Þá laga það sem þeir gerðu þjóðinni.

Jóhanna og CO eru ekki líkleg til að gera neitt af því sem lofað var svo burt með þau, ég lít svo á að þau séu ómerkingar og eigi að hætta í pólitík. 


mbl.is Icesave gæti fellt stjórnina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta er sjálfsagt bara byrjunin

á svikum loforða kvenfrelsishetjunnar Steingríms J. sjá:  http://www.amx.is/stjornmal/7100

Annars finnst mér að ungir VG ættu að hafa áhyggjur af öðru en þessu og snúa sér að því sem skiptir máli, þ.e skuldum heimilanna.

Ef ekki verður spyrnt við í vandræðum heimila á Íslandi mun bresta á  mikill flótti fólks úr landi, sem að sumu leyti er byrjaður, fólki sem við nauðsynlega þurfum á að halda til endurreisnar landsins.

Ég hef hvergi heyrt neina aðgerðaáætlun um endurreisn en sjálfsagt verður þetta skoðað eins og svo margt annað. Pottþétt áætlun Jóhönnu sem sér ekkert annað en inngöngu í ES til bjargar og orð Steingríms J að allt verði svo gott aðeins ef hann komist að við kjötkatlana, er bara fúsk og orðgjálfur. Engin orð um stöðu heimila og fyrirtækja, aðeins skattahækkanir og fjárhagsleg píning þeirra sem minnst eiga sök á ástandinu.


Váááá fáum við lýður landsins að kjósa um ES aðild.

Ég skil ekki þessa umræðu um að í samningum Samfylkingar og VG eigi að efna til þjóðaratkvæðisgreiðslu eftir að samningur við ES er tilbúinn til undirskriftar.

Allar þjóðir sem eru innan ES hafa haft þjóðaratkvæðagreiðslu um samninginn við ES. Er einhver vafi um að við fáum ekki að njóta hins sama og aðrar Evrópuþjóðir? Er lýðræðið í hættu hjá flokkunum sem segjast vera lýðræðissinnaðir. Eru þeir kannski ekki  lýðræðissinnaðir heldur einræðissinnaðir í anda Sovét og þriðja ríkisins.

Spyr sá sem ekki veit.

 


mbl.is ESB-málið til Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ráðamenn þjóðarinnar eru enn í afneitun

og neita að skilja neyð fólks sem komið er í greiðsluvandræði. Öll þau ráð sem Gylfi gefur, eru annaðhvort ekki komin til framkvæmda eða það þarf sendibíl til að koma öllum pappírum til útfyllingar til að fá frystingu eða aðrar tiltækar úrlausnir.

Það er einkenni kommúnistaríkja eins og Íslands að það á að drekkja öllu í pappír svo hinn vinnandi maður treysti sér ekki til að fara í neinar þær úrbætur sem tiltækar eru.

Það er líka annað sem setur að manni kvíða. Ég sá fyrir nokkru að aðstoðarmaður Jóhönnu er Hrannar B Arnarsson, gamall hundur úr bókafélagi sem sendi allt í einu gömlum viðskiptavinum, sem hætt höfðu viðskiptum nokkru fyrr, tímarit að því er virtist ókeypis. Lögfræðingar voru samt ekki langt undan til að gera lögtak hjá þeim sem ekki borguðu tímaritin sem ekki voru umbeðin og margir töpuðu miklum peningum á braski þeirra félaga Helga Hjörvars og Hrannars B. Arnarssonar. Tímaritið Þjóðlíf sem þeir félagar ráku skuldaði vörsluskatta og mig minnir að Hrannar hafi fengið sekt fyrir sinn hlut og þurft að bakka af lista Samfylkingarinnar í Reykjavík og bjargað með því pólitísku lífi Helga með því að taka á sig sök.

Þessir menn eru núna aðal hugmyndafræðingar nýrrar ríkisstjórnar af hálfu Samfylkingar, og megi Drottinn blessa Íslensku þjóðina þegar uppskriftin að gjaldþroti heimilanna liggur fyrir.


mbl.is Flestir geta staðið í skilum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þessi flensa er ekki eins hættuleg

og margir halda. Ef þetta er H1N1 afbrigði, þá er þetta bara venjuleg inflúensa A sem allir fá einhvern tíma og menn jafna sig á henni á viku eða tíu dögum. 

Það er samt ástæða fyrir þá sem eru sjúkir eða aldraðir að fá einn skammt af t.d Tamiflu, það virkar vel á þessa gerð af veirusýkingu.

Annars bendi ég fólki að fara á síðu landlæknisembættisins og kynna sér málið.

Þetta virðist ekki vera eins slæmt og fyrst var haldið. 


mbl.is Svín greind með flensu í Kanada
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta var svo sem fyrirséð.

VG vill ekki, en Samfylking heimtar.

Ef þetta er það sem koma skal í samvinnu flokkana, þá gef ég ekki mikið fyrir þessa vinstri stjórn, því miður.


mbl.is Enn ósætti um ESB-málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég er nokkuð viss um að

Kolbrún Halldórsdóttir hefur kostað VG u.þ.b 5 prósent í fylgi. Formaðurinn viðurkenndi að þessi umræða hefði komið illa við flokkinn, sérstaklega í NA kjördæmi.

Hvað varðar flokkinn minn, Sjálfstæðisflokkinn, þá er sú útreið eðlileg og jafnvel er það sigur í sjálfu sér að fá þó þetta fylgi eftir að hafa verið gerður ábyrgur eftir hrun efnahagskerfisins. Endurnýjun frambjóðenda hefur ekki verið nægjanleg og engan vegin trúverðug. Það þarf að endurnýja mun harðar og miskunnarlausar til að teljast trúverðugur.

Ég bý í Reykjanesbæ og á meðal frambjóðenda er dæmdur maður sem uppvís var að því að fara fjálglega með eigur annara, þ.e ríkisins (okkar). Ég get samvisku minnar vegna ekki kosið flokkinn á meðan þessi maður er á listanum jafnvel þó að viðkomandi hafi hlotið uppreist æru og útstrikanir eru leyfðar. Eins er annar maður Sjálfstæðisflokksins í kraganum sem datt síðastur inn á þing þ.e Jón Gunnarsson. Ég veit ekki hvað þessi maður er að gera á þingi, aldrei hef ég séð nokkuð af viti koma frá þessum manni og það eina sem hann hefur gert er að fara í einhverskonar "mission" gegn Varnarmálastofnun og aðgerðir í þágu Neyðarlínunnar. Maðurinn er náttúrulega tengdur NL og það er hans eina markmið að "lobbíast"fyrir hana. Engu skiptir önnur mál sem brýna nauðsyn er að leysa, aldrei sér maður hann taka þátt í umræðum um þau.

Hvað fylgi Sjálfstæðismanna varðar, þá er nauðsynlegt að fara í vandlega naflaskoðun og skoða með mikilli gagnrýni hvað er að innviðunum og skera burt sölnuðu laufin. Þetta er starf formannsins og hann þarf að standa í lappirnar og vera vægðarlaus í naflaskoðuninni, þannig og aðeins þannig vex fylgið að nýju. 

Það er spá mín að vinstri stjórn verði ekki lengi við lýði og kosningar verði að ári og það jafnvel þrennar ef að líkum leiðir, þá þarf þessu starfi að vera lokið svo kjósendur fái traust á flokknum aftur, enda er það traust sem skilar mönnum inná þing framar öllu. 

 

 


mbl.is Kannanir langt frá kjörfylgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Helgi Jónsson
Helgi Jónsson

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 19
  • Frá upphafi: 910

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 19
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024

S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband