Hvar enda þessi ósköp. Greiningardeild Glitnis (er Glitnir ekki farin á hausinn? ) spáir að allt verði komið í himnalag aftur um mitt ár 2010. Hvenær hefur greiningardeild Glitnis haft rétt fyrir sér sl. mánuði? ALDREI.
Ég held að þessir gæjar eigi að halda sínum kj... saman og vera ekki með neinar yfirlýsingar um komandi framtíð.
Það er viðbúið að heilmilin fái reikningin fyrir þessu brölti fjárglæframanna með orðspor íslands og eignir, eins og alltaf þarf hinn almenni borgari í þessu landi að borga og bera ábyrgðina. Þeir ganga út frá þessu þegar þeir fara af stað.
Stjórnmálamennirnir hafa enga ábyrgð og hafa komið því svo við að það sem eftir var af orðsporinu er farið og það á greinilega ekkert að gera til að reyna að laga það aftur.
Ég persónulega hef misst trúna á þá menn sem standa við stjórnvölinn eftir atburði s.l vikna og ég mun ekki styðja þá til endurkjörs hvenær sem til kosninga kann að koma.
Fyrrverandi forstjóri 365 Miðla var í Íslandi í dag fyrir nokkrum vikum síðan og kallaði hann Geir Haarde gufu. Ég hef ekki getað hrint þessari hugsun út úr höfðinu á mér og hef komist að því að hann sagði satt , Geir Haarde er gufa og mun ekkert gera til að jafna hlut okkar við Breta eða koma heimilunum til hjálpar á þessum örlagatímum. Hann er bara ekki maður til þess.
Það virðist vera að flokkarnir séu að nota tímann til að reyna að koma sínum mönnum að við kjötkatlana og sinna ekki þeim skyldum sínum að hjálpa þeim sem hafa misst allt og eru í fjármálakrísu NÚNA. Ef það kemur á daginn að svo sé þá verð ég fyrstur til að ganga í þá hreyfingu sem mun með góðu eða illu koma þessum mönnum frá svo hægt verði að gefa sanngjarnt upp á nýtt þannig að allir Íslendingar fái réttan sinn hlut.
Krónumarkaðir freðnir sem fyrr | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Bloggar | 15.10.2008 | 08:45 (breytt kl. 08:45) | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2016
- Október 2012
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007
Af mbl.is
Erlent
- Handtekinn fyrir njósnir í bandaríska sendiráðinu
- Hefur áhyggjur af notkun eldflauganna
- Herra Volvo er genginn
- Sakar dómstólinn um gyðingahatur
- Merkel segir Trump heillaðan af einræðisherrum
- Hótar Bretum og Bandaríkjamönnum
- Hættir við að reyna að verða ráðherra Trumps
- Segir að Rússar séu að nota Úkraínu sem tilraunasvæði
- Handtökuskipun á hendur Netanjahú og Gallant
- Leitar á ný mið eftir kolranga könnun
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.