Bloggfærslur mánaðarins, maí 2008
tók nýja stefnu í gær, þegar birtar voru niðusrstöður skoðanakönnunar sem fram fór nú á dögunum. Þar kemur í ljós að yfirgnævandi fjöldi manna vildi HAFA flugvöllinn þar sem hann er.
Athygli vakti að 59% kjósenda Sjálfstæðisflokksins vildi völlinn þar sem hann er, og skyldi nú vera komin skýringin á því af hverju flokknum gengur svo illa í kosningum. Þau Gísli Marteinn og Hanna Birna ættu nú að kúvenda í málinu eða hætta í pólitík ella að hleypa að mönnum sem virða vilja fólksins. Þetta mál er Sjálfstæðisflokknum til skammar vitandi það að málið byrjaði hjá samtökum sem heitir "Betri byggð" fór þaðan til Samfylkingarinnar og þaðan rataði málið hjá Gísla Marteini og Co.
Það, að taka upp mál sem Samfylkingin fór af stað með upphaflega og ætla að vinna kosningar án þess að virða vilja fólksins, er fyrir neðan allar hellur. Sjálfstæðisflokkinn vantar fólk í forystu til að játa þá staðreynd að flugvöllurinn á að vera þar sem hann er, og vinna út frá því. Þannig gæti flokknum vegnað betur í framtíðinni.
Bloggar | 27.5.2008 | 03:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
þegar sveitarfélögin á Suðurnesjum talast ekki við um lagningu rafmagnslína vegna uppbyggingu starfa á Miðnesheiði og Helguvík.
Hvað sem mönnum finnst um ljótleika línanna þá eru þær nauðsynlegar til að flytja rafmagn á sem hagkvæmastan máta. Ef leggja á allar línur í jörð, þá verður svo mikið tap í línunum, að reisa verður virkjun á stærðargráðunni Kárahjúka til þess eins að vinna upp tapið sem verður við flutning raforkunnar. Vinstri Grænir allra flokka virðast ekki skilja málið og telja það sér til framdráttar að hindra alla uppbyggingu atvinnu á Íslandi og koma helst öllum aftur inn í moldarkofana og fimm hundruð ár aftur í tíma, þegar fólk lifði við sult og seyru og rétt dró fram lífið. Umhverfisofbeldið hjá þessu liði er makalaust. Það má ekki gera nokkurn skapaðan hlut lengur án þess að málið fari fyrir umhverfismat og það er dýrt og ekki atvinnu til framdráttar.
Það er tími kominn til að hætta að hlusta á VG liðið og byrja að nytja alla þá orku sem við getum fengið frá móður náttúru, okkur og börnum framtíðar til heilla.
Bloggar | 26.5.2008 | 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
hin nýja, hefur fengið góðan liðsmann þar sem Tinna er. Ég vil samt byrja á því að óska henni innilega til hamingju með starfið, sem á eflaust eftir að vera krefjandi og vonandi skemmtilegt.
Varnarmálastofnun og hennar hlutverk með varnir landsins er umdeilt. Það ætti þó mönnum að vera ljóst að í fyrsta skipti frá stofnun lýðveldisins höfum við sem þjóð eitthvað um varnir landsins að segja. Þó að gistikostnaður sé hár í augum sumra, þá er hann smáræði miðað við það sem önnur NATO ríki kosta til að koma hingað og sinna loftrýmisgæslu landsins.
Við eigum að vera stolt yfir því að vera loksins laus undan klafa erlends ríkis og reka okkar varnarmál, stolt og sjálfstæð.
Skipuð forstjóri Varnarmálastofnunar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 20.5.2008 | 07:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
með þennan Jón Gunnarsson þingmann Sjálfstæðisflokksins, er hann á móti veru okkar í NATO eða bara svekktur yfir því að hann fékk ekki loftrýmisgæsluhlutverkið í Skógarhlíðina eins og hann ætlaði. Það er bara tvennt sem hægt er að gera í stöðunni. Annarsvegar sinna gestahlutverkinu og fá aðrar þjóðir til þess að halda uppi loftvörnum yfir Íslandi eða hinsvegar að segja sig úr NATO.
Að segja sig úr NATO yrði stórmál og vekti stórkostlega neikvæða athygli um allan heim. Við erum í fyrsta skipti orðin sjálfstæð þjóð sem tekur sjálfstæða ákvörðun um varnir sínar og borgar fyrir þær. Við erum ekki lengur bara þiggjendur og upp á aðra komnir heldur farnir að leggja til peninga fyrir okkur sjálf, til varnar eigin lands.
Hvað varðar hörmungarnar í Kína, þá er samúð mín hjá Kínversku þjóðinni og mér finnst sjálfsagt að bjóða fram þá aðstoð sem við getum boðið fram. Það er þá hlutverk Kínverjanna að hafna eða þiggja slíkri aðstoð.
Ísland velji ekki hernaðarverkefni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | 16.5.2008 | 08:31 (breytt kl. 19:25) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
eru æstir þessa dagana. Meirihlutaskipti í bæjarstjórn og K-lista fólk óhresst yfir því að fá ekki lengur að vera með, skiljanlega.
Eftir að hafa búið í víkinni í 12 ár og hafa fylgst með pólitíkinni þar allan þann tíma, og einnig eftir að ég flutti suður, þá hef ég ekki fundið aðra eins heift í fólki eins og núna. Nokkrir einstaklingar hafa farið hamförum og gert allt sem hægt er að gera til að koma höggi á verðandi meirihluta og fólkið sem starfar að heilindum fyrir bæjarfélagið.
Mér finnst til dæmis ákaflega ósmekklegt af eiginmanni læknis bæjarins, að líkja bæjarbúum við apa af því að honum fellur ekki það sem er að gerast í bæjarpólitíkinni. Sjá færslur hans hér. http://lydurarnason.blog.is/blog/lydurarnason/entry/524611/
Á sama tíma og þetta fólk er að tala um einingu og samstarf, þá virðist ekki vera sama hvaðan einingin og samstarfið kemur, það verður að vera að skapi þessa fólks, eða ekki. Mig tekur það sárt að sjá hvað nokkrir einstaklingar geta gert til að sundra því góða orðspori sem Bolungarvík hafði meðal landsmanna með neikvæðum og einhæfum fréttaflutningi.
Án þess að ég ætli að bera í bætifláka fyrir A-listann, þá held ég að þessi slit meirihlutans fyrrverandi hafi haft aðdraganda, sem kannski eiga eftir að koma í ljós seinna meir. Ég þekki Önnu Edvards það vel að hún hefur ekki tekið neina skyndiákvördun um slitin. Ég treysti Elíasi og hans fólki til þess að reka bæjarfélagið vel og skynsamlega og vona að samstarfið við A-lista verði heilladrjúgt.
Bloggar | 1.5.2008 | 04:43 (breytt kl. 05:05) | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 8
- Sl. sólarhring: 8
- Sl. viku: 9
- Frá upphafi: 1024
Annað
- Innlit í dag: 8
- Innlit sl. viku: 9
- Gestir í dag: 8
- IP-tölur í dag: 8
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Mars 2016
- Október 2012
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Apríl 2011
- Febrúar 2011
- Október 2010
- September 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
- Maí 2007